Thursday, September 25, 2014

Oreo popp!

Á sunnudaginn langaði mig að útbúa eitthvað fljótlegt, óhollt og gott! Ég hafði gleymt óhollustunni á sjálfum nammideginum og veðrið var hundleiðinlegt svo það var kjörið að skella í smá tilraunastarfsemi í eldhúsinu! ;)
Ég fór á Pinterest og fann auðvelda aðferð við að búa til Oreo popp! Að sjálfsögðu ætla ég að deila henni hérna með ykkur ;)

Hráefni:
Einn popp poki
Einn poki hjúpsúkkulaði
12 stk oreo kexkökur

Aðferð:
Poppið poppið, myljið kexið, bræðið súkkulaðið, blandið öllu saman og skutlið í kæli í smástund! ;)

Mér lá svo á að mylja oreo kexið að ég gleymdi að taka mynd af því áður en ég muldi það niður í pokanum... það er ágætis útrás að kasta pokanum í gólfið eða á eldhúsbekkinn -bara að passa að það komi ekki gat á pokann! ;)

Það er eiginlega krúsjalt að muna eftir að poppa poppið! Ég nota Pop Secret, en bara vegna þess að mér finnst það vera bragðbesta örbylgjupoppið en að sjálfsögðu má nota hvaða popp sem er -bara svo fremur sem það er poppað ;)

Ég nota einnig ljóst hjúpsúkkulaði, við hér á heimilinu erum ekki hrifin af dökku súkkulaði :)

Bræða, bræða, bræða... ef þið eruð ekki með svona fensí pensí pottasett eins og ég verður að bræða súkkulaðið annaðhvort í örbylgjunni eða yfir vatnsbaði, bara að passa að vatnið fari ekki í súkkulaðið því þá þarf að byrja uppá nýtt ;)

Hellið bræddu súkkulaðinu yfir poppið og blandið vel saman áður en oreo mulningnum er bætt við

Svo er bara að skutla oreo-inu með í partýið og blanda, blanda, blanda! ;)

Lookin´ goooood!!!

En sú dýrðarinnar dásemd! Það var erfitt að þurfa að skutla þessu í ísskápinn í nokkrar mínútur til að leyfa súkkulaðinu að harðna en það var vel þess virði! ;)

Dóttirin var hæstánægð með tilraunina og bað mig um að gera svona aftur fljótlega... enda duttum við öll gjörsamlega ofan í skálina!
Ég mæli með að þið prófið og hvet ykkur til að láta vita hvernig ykkur finnst ;)

Verði ykkur að góðu ;)

Þartil næst,
Hilda

1 comment:

  1. mmm verð að prufa þetta á laugardaginn :)

    ReplyDelete