Já, nú er hægt að ljóstra því sem leyndist í jólapökkunum frá okkur þetta árið! ;)
Þeir sem mig þekkja gætu mögulega giskað á að námsmaðurinn með Monicu-genið og vænu skvettunni af húsmóðurskyldunni hafi skellt sér á Ebay og séð fyrir jólagjafainnkaupum þar... viðkomandi aðilar höfðu rétt fyrir sér þar! ;)
Langflestar jólagjafirnar voru einmitt verslaðar í lok október/byrjun nóvember og rötuðu í jólapakka fólks í kringum okkur :)
![]() |
Tengdafaðir minn fékk þessa lyklakippu frá okkur, nafnið hans er nánast skrifað yfir hana enda er hann formúlukall ;) |
![]() |
Við gáfum einnig svona á tvö heimili, enda finnst mér þetta vera algjör snilld eftir að við keyptum svona fyrir okkur sjálf núna fyrr í haust ;) |
![]() |
Við gáfum svo einni frænku minni svona, mér finnst þetta alveg dásamlega fallegt sett! |
Bróðir minn er tedrykkjukall svo mér fannst alveg tilvalið að sprella eitthvað aðeins með það... þegar ég rakst á þennan varð ekki aftur snúið ;) |
![]() |
Frændi minn (22 ára) og mágur minn (16 ára) fengu báðir svona húfur. Mér finnst þær ferlega töff, og enn flottari í notkun! |
![]() |
Systir mín fékk svo þessa krosssaumsmynd, hún var fljót að taka upp pakkninguna og hefjast handa við að sauma hana ;) |
Svo fengu tvær systur mínar hálsmen í vintage-stíl, en eins og er virðast þau ekki vera til sölu á Ebay lengur svo ég get ekki komið með mynd af þeim. En þau voru mjög falleg og ég vona að þær séu ánægðar með þau... einnig vona ég að allir séu ánægðir með það sem þeir fengu frá okkur :)
Bróðir minn og fjölskyldan hans í Danmörku fengu íslenskt nammi (foreldrarnir) og bækur (krakkarnir) líkt og fyrri ár ;) Lítil frænka mannsins míns fékk bók og önnur ung dama sem er tveggja mánaða fékk teppi sem ég prjónaði í sumar ;)
![]() |
Teppið sem ég prjónaði, virkilega skemmtileg og auðveld uppskrift ;) |
Annars erum við búin að njóta jólanna til hins ítrasta! Við, litla fjölskyldan, vorum hér heima á aðfangadagskvöld í kósýheitum og nutum þess í botn. Á jóladag lá leiðin til systur minnar og hennar fjölskyldu í Keflavík líkt og venja er. Þar fengum við dýrindis hangikjet og tilheyrandi, þetta er frábær hefð sem hefur orðið hjá okkur og ég yrði ónýt ef við kæmumst ekki til þeirra á jóladag!
Á gamlársdag verðum við hjá tengdó og allri stórfjölskyldunni. Það verður án efa dásamlegt og hávaðasamt, enda búa þau á sjöundu hæð og af þeim sökum fara flugeldarnir sko ekki framhjá manni! Sem dóttirin kann reyndar alls ekki að meta, enda er hún ekki flugeldamanneskja og erum við mægður ávallt saman inni á gamlárskvöld... ég að knúsa hana og reyna að fá hana til að sjá öll fallegu ljósin og sannfæra hana um að þetta sé allt í lagi, við séum alveg öruggar innandyra og getum horft á flugeldana og notið þeirra... hún hefur ekki enn keypt þau rök en sjáum til hvað verður í ár ;)
Ég kem svo fljótlega með ársuppgjör... er bara búin að vera of löt til að nenna nokkrum sköpuðum hlut!
Heyrumst síðar,
Hilda
skemmtilegar gjafir og flott teppi hjá þér :)
ReplyDeleteTakk fyrir það :D
DeleteÞú færð fullt hús stiga fyrir menið - það er æðislegt! :D
ReplyDelete