Monday, July 20, 2015

Kertaarinn - DIY

Í maí gerðist ég svo djörf að splæsa í eitt stykki sjónvarpsskáp í Fjölsmiðjunni á Suðurnesjum (ókei, Keflavík!) Ég sá fyrir mér að breyta honum í kertaarinn fyrir næsta vetur svo ég gæti hætt að hugsa um það hversu mikið mig langaði í kertaarinn. Tíminn leið... og leið... ekkert gerðist... ég á fullu í vinnunni og í vaktafríunum mínum lá ég eins og slytti í sófanum að drepast úr þreytu.

Ég fékk nóg... barði hnefanum í borðið (eða skápinn, hvort sem virkar dramatískara...) og sagði: „Hingað og ekki lengra, nú klára ég helvítið!“ Því næst skundaði ég í Bauhaus, keypti grunn, lakkmálningu, pensil, veggfóður og veggfóðurslím. Leiðin lá svo heim á leið og var hafist handa við verkið.

Grunnurinn heitir: Sadolin Grunder træ, base white. Lakkmálningin heitir: Sadolin træ og metal V Super í antík hvítum, Lakkmálningin var sett á í tveimur umferðum. 
Ég hef aldrei áður tekið heilt húsgagn og breytt því svona svo ég bjóst ekki við neinu rosalega flottu, í raun bjó ég mig undir að verða fyrir vonbrigðum og enda á að henda mublunni á haugana... en ég get ekki annað sagt en að ég sé himinlifandi með þetta, til að vera alveg hreinskilin þá er ég farin að gjóa augunum að öðrum húsgögnum á heimilinu og hugsa um hvernig ég geti breytt þeim... ;)

Annars held ég að myndir segi meira en þúsund orð, njótið!

Svona var skápurinn fyrir breytingarnar. Að vísu er smá sparsl á hægra horninu því það var brotið svo við settum sparsl til að fylla upp í brotið, þegar það var orðið þurrt var það pússað til áður en hafist var handa við að grunna.
Sumir komu sér vel fyrir þegar skúffurnar voru teknar úr og við vorum að undirbúa verkið...


Grunnurinn kominn á
Tvær umferðir af lakkmálningunni komnar á
Skúffurnar komnar í og farið að undirbúa veggfóðursvinnuna. Ég ákvað að láta höldurnar á skúffunum halda sér enda finnst mér þær gefa mikinn sjarma og vera hinar einu réttu höldur fyrir mubluna ;)
Voilá! Skápurinn tilbúinn!
Eins og ég sagði áðan þá er ég hæstánægð!
Til að undirstrika breytinguna læt ég samsetta mynd fylgja með, þessa "típísku" "fyrir og eftir" -mynd.


Annars er ég mjög upptekin þetta sumarið, þá aðallega í vinnunni og bitnar það hvað allra mest á þessu blessaða bloggi... það verður bara að hafa það ;)

Við heyrumst síðar!

Hilda

2 comments:

  1. Nína Margrét heiti ég og rakst á bloggið þitt, verð að segja að þetta er ekkert smá flott breyting á skápnum! :) Til hamingju með þetta vel unnið verk. :)

    ReplyDelete