Í maí gerðist ég svo djörf að splæsa í eitt stykki
sjónvarpsskáp í Fjölsmiðjunni á Suðurnesjum (ókei, Keflavík!) Ég sá fyrir mér
að breyta honum í kertaarinn fyrir næsta vetur svo ég gæti hætt að hugsa um það
hversu mikið mig langaði í kertaarinn. Tíminn leið... og leið... ekkert
gerðist... ég á fullu í vinnunni og í vaktafríunum mínum lá ég eins og slytti í
sófanum að drepast úr þreytu.
Ég fékk nóg... barði hnefanum í borðið (eða skápinn, hvort
sem virkar dramatískara...) og sagði: „Hingað og ekki lengra, nú klára ég
helvítið!“ Því næst skundaði ég í Bauhaus, keypti grunn, lakkmálningu, pensil,
veggfóður og veggfóðurslím. Leiðin lá svo heim á leið og var hafist handa við
verkið.
![]() |
Grunnurinn heitir: Sadolin Grunder træ, base white. Lakkmálningin heitir: Sadolin træ og metal V Super í antík hvítum, Lakkmálningin var sett á í tveimur umferðum. |
Ég hef aldrei áður tekið heilt húsgagn og breytt því svona
svo ég bjóst ekki við neinu rosalega flottu, í raun bjó ég mig undir að verða
fyrir vonbrigðum og enda á að henda mublunni á haugana... en ég get ekki annað
sagt en að ég sé himinlifandi með þetta, til að vera alveg hreinskilin þá er ég
farin að gjóa augunum að öðrum húsgögnum á heimilinu og hugsa um hvernig ég
geti breytt þeim... ;)
Annars held ég að myndir segi meira en þúsund orð, njótið!
![]() |
Sumir komu sér vel fyrir þegar skúffurnar voru teknar úr og við vorum að undirbúa verkið... |
![]() |
Grunnurinn kominn á |
![]() |
Tvær umferðir af lakkmálningunni komnar á |
![]() |
Skúffurnar komnar í og farið að undirbúa veggfóðursvinnuna. Ég ákvað að láta höldurnar á skúffunum halda sér enda finnst mér þær gefa mikinn sjarma og vera hinar einu réttu höldur fyrir mubluna ;) |
![]() |
Voilá! Skápurinn tilbúinn! |
Eins og ég sagði áðan þá er ég hæstánægð!
Til að undirstrika breytinguna læt ég samsetta mynd fylgja með, þessa "típísku" "fyrir og eftir" -mynd.
Annars er ég mjög upptekin þetta sumarið, þá aðallega í vinnunni og bitnar það hvað allra mest á þessu blessaða bloggi... það verður bara að hafa það ;)
Við heyrumst síðar!
Hilda
Nína Margrét heiti ég og rakst á bloggið þitt, verð að segja að þetta er ekkert smá flott breyting á skápnum! :) Til hamingju með þetta vel unnið verk. :)
ReplyDeleteTakk fyrir það :D
Delete