Wednesday, August 12, 2015

Plön fyrir þriðja tuginn

Þau sem þekkja mig eru meðvituð um þá staðreynd að ég verð þrítug á árinu, eftir nákvæmlega 3 mánuði og 12 daga... samt ekki eins og ég sé að telja...
Það sem mun einkenna þessi tímamót er fyrirbæri sem kallast "prófalestur" og kemur það í veg fyrir tilheyrandi partýstand og fyllerí sem stendur yfir heila helgi (það er nefnilega þannig sem ég rúlla...) 
Í staðinn hef ég því ákveðið að taka forskot á sæluna og taka minn ástkæra betri helming með mér til Skotlands yfir eina helgi, sem er jú eitthvað sem mig hefur langað að gera ansi lengi -ég hef meira að segja minnst á það hér á blogginu ;)

Það getur vel verið að maður kíki þangað... ;)
Ef einhverjir vilja gleðja mig óstjórnlega tek ég glöð við pundum... eða viðbjóðslega dýrum gjöfum... take your pick ;)

Ég stefni á útskrift næsta vor, ef allt gengur að óskum... Krossum putta!


Annars styttist í að skólarnir hjá okkur byrji... sambýlismaðurinn byrjar fyrstur, svo er dóttirin viku á eftir honum og því næst byrjar minn skóli viku síðar... hvert fór sumarið eiginlega?!? Ég bara spyr!


Jæja, þarf að skreppa út í þetta ógeðslega veður. Eins gott að ég fjúki ekki!

Heyrumst,
Hilda

No comments:

Post a Comment