Sunday, September 13, 2015

Glasgow beibí, Glasgow!

Það hefur ekki farið framhjá neinum fésbókarvini mínum að ég og minn betri helmingur lögðum leið okkar úr landi síðustu helgi. Leiðin lá til Glasgow í helgarferð... loksins!


Fjörið byrjaði að vísu á tveggja tíma seinkun á fluginu út á fimmtudeginum, ekki alveg það skemmtilegasta þegar flugið tekur bara tvo tíma... en það var ekkert við því að gera nema skella í sig smá „kaffi“ og fara svo í loftið um það leyti sem við hefðum átt að vera að lenda úti.

Ég fékk mér sko alveg kaffi líka... ég bara tók ekki mynd af því! ;)

Ég náði að versla nokkuð þokkalega, útsölurnar voru að byrja svo ég náði að spara enn meira á sumum hlutum... sem þýddi að ég gat þá verslað meira í Primark! ;)

Það liggur við að ég rammi þessa mynd inn! ;)

Elskulega Primark, ég veit ekki hvaða orð lýsa því best! Hægt að fá allt fyrir ekkert, bókstaflega! Ég verslaði úlpur á okkur fjölskylduna, haug af nærfötum, sokkum og já.. bara allt! Skór líka! Ég fann líka nokkra hluti til að punta heimilið, auk þess sem við versluðum nokkrar jólagjafir í þokkabót! Dásamlegt!

Það var smá ugluþema í innkaupunum hjá mér... þetta er annars allt úr Primark, nema járnuglan fremst til vinstri, hún er úr Poundland ;)

Ég er strax farin að plana ferð á næsta ári, þá verður það í aðeins lengri tíma heldur en núna. Ég kem örugglega til með að vera jafnvel á sama hóteli aftur, Jury´s Inn, það er frábærlega staðsett því það er bara rétt við verslunargöturnar og mollin. Við fengum einnig frítt WiFi og morgunmaturinn var innifalinn, þvílíkt dásemd... ;)

Hótelið okkar, Jury´s Inn
Klassi að taka mynd af herbergisganginum á hæðinni okkar ;)

Ég náði svo að sjálfsögðu að plata betri helminginn til að stoppa á Starbucks og kaupa kaffi. Ég ákvað að prófa Pumpkin Spice Latté, vinkona mín var búin að dásama það fyrir einhverju síðan í prjónó og allt í einu mundi ég eftir því þegar ég var að ákveða hvað ég vildi fá... ég varð svo sannarlega ekki svikin, enda fór ég aftur og fékk mér annan... svo ætlaði ég að fá annan á flugvellinum þegar við vorum að bíða eftir fluginu heim en var þá tilkynnt að það væri seasonal tegund sem væri einungis í boði í desember... einmitt...

Verslunargata... mér finnst byggingarnar áberandi flottar... eitthvað annað en Laugavegurinn... myndavélin á símanum nær engan veginn að sýna það þó, því miður...
Primark og Starbucks við sömu verslunargötu, ég var ekkert að hata það sko!

Bjúúúúútífúúúúúúúl!!! ;)
Við kíktum í þetta moll líka, Princess Square. Við versluðum ekkert þarna en ég varð alveg heilluð af því hversu falleg ein verslunarmiðstöð getur verið... já! Ég sagði falleg!

Já... ég fann örfáar snyrtivörur í Primark sem mig langaði að prófa...
Skólinn er svo byrjaður af krafti og rútínan er að komast í fastar skorður. Monica er aðeins búin að fá að viðra sig í skipulagstöflum og skemmtilegheitum, það þýðir ekki að hafa allt í kaosi! ;)

Heyrumst síðar!
Hilda

No comments:

Post a Comment