Thursday, October 1, 2015

Rúmfó og Ittala...

Við ætlum að líta framhjá þeirri staðreynd að ég var í langþráðri verslunarferð í síðasta mánuði. 

Ókei. 

Ég lenti (alveg óvart!) í Rúmfatalagerinn síðustu helgi. Ég fór í þeim tilgangi að kaupa lök á rúmin okkar, lökin sem við áttum fyrir voru orðin götótt og sjúskuð... og mig vantaði afsökun til að fara og skoða.

Ég fann vissulega lök. Jájá, ekki í vandræðum þar sko. Þau eru alltaf á sama stað, í stórri körfu í gangveginum við garnið (þið athugið að nú er ég að miða við Rúmfatalagerinn í Smáratorgi)
Ég var reyndar svo sniðug að senda manninn og dótturina að fá sér að borða á meðan ég rétt stökk inn að ná í lökin... ég held að maðurinn minn endurtaki það ekki í bráð...

Þessi kallaði bara á mig! Ég gat ekki litið undan! Það var ást við fyrstu sýn!
Hey... dýrið má ekki vera skilið frá skóginum sko! Svo er hann líka svo fallegur... passar vel í fína sófann minn!

Já, ég keypti púða! Mér til varnar voru þeir á útsölu og það eru ár og aldir síðan ég keypti mér púða síðast! Þessi á efri myndinni var á 995 krónur (var áður á 1295 kr) og þessi fyrir neðan var á 1495 krónur (var áður á 2495 kall). 
Ég er búin að banna fjölskyldumeðlimum að leggjast á þá. 
"Þeir eru bara til skrauts!!!"
Maðurinn minn hristir höfuðið og skilur ekkert í mér...

Dóttirin í ofurslökun eftir heimanámið... takið eftir því hversu mikið hún vandaði sig við að raða gömlu púðunum undir sig og hafa nýju púðana í hæfilegri fjarlægð frá krumpuheitunum. Já, hún er svona vel upp alin! ;)

Ég datt í Monicugír í fyrradag og tók allsherjar tiltekt í svefnherberginu, þar var komin nokkuð álitlegleg hrúga af drasli sem ég ætlaði að fara í gegnum "einn góðan veðurdag"... 
Ég (ókei, maðurinn minn... þessi elska!) fann í þessari tiltekt eina Ittala kertastjakann sem ég hef eignast. Ég fékk hann í jólagjöf ´05 eða ´06 (sko, ÁÐUR en Ittala varð svona ferlega kúl!) og ég var búin að telja sjálfri mér trú um að hann hefði týnst þegar við fluttum árið 2007... svo leyndist hann í litlum skókassa sem var fullur af staupglösum og drasli... jebb, við erum sífellt að staupa okkur!




Ég man þegar ég fékk hann þá var ég ekki viss um hvað mér fyndist um hann en ákvað samt að halda honum. Nú kann ég betur að meta hann, mér finnst hann fallegur og passa betur á heimilið nú heldur en hann gerði þá. Mér er í raun slétt sama þó hann sé Ittala og reyndar flissaði ég aðeins innra með mér þegar ég sá að miðinn var ennþá á honum. Ég las nefnilega einhverja svakalega umræðu á Facebook fyrir einhverju síðan um límmaðana á Ittala vörunum, sumir voru á því að það mætti alls ekki taka þá af á meðan aðrir hikuðu ekki við það... hin tvítuga ég virðist hafa viljað halda honum allavega ;)

Ég er svo búin að versla smá á Ebay undanfarið (ég endurtek: ég var EKKI í verslunarferð í síðasta mánuði!), það er tilefni í aðra færslu síðar enda eru þau kaup liður í undirbúningnum fyrir afmælisveislu dótturinnar... já, hún verður 8 ára í þessum mánuði. Ekki 8 mánaða, 8 ára... sjitt!

Heyrumst síðar!
Hilda

No comments:

Post a Comment