Þann 17. október varð dóttir mín 8 ára. Þegar við héldum uppá afmælið hennar í fyrra vorum við með Frozen-þema, eins og einhverjir muna kannski eftir... ef ekki má lesa um það
hér.
Að þessu sinni var þemað alveg á skjön við Frozen... daman vildi nefnilega endilega hafa hrekkjavökuþema!
Hvað gerir móðir sem á ekkert sem tengist hrekkjavöku? Jú, hún fer margar ferðir í búðir og þefar uppi skraut fyrir herlegheitin, manninum hennar til mikillar "gleði" ;)
Ég var ekki sérstaklega virk með myndavélina þegar búið var að gera allt klárt fyrir veisluna. Til dæmis virðist ég ekki hafa tekið myndir af Froosh-flöskunum sem ég skreytti sérstaklega og við gerðum litlar pítsur í laginu eins og hauskúpur... því miður, ljósmyndarinn var ekki að standa sig þarna.
Ég á þó nokkrar (misgóðar) myndir af skrautinu sem ég verslaði, þið fáið þó að sjá eitthvað! ;)
Við buðum semsagt uppá litlar pítsur, "blóðdrykk" (rauður Ribena safi) með þurrís (ég virðist bara hafa tekið vídjó af því, ekki myndir -sorrý!), saltstangir, "nornaneglur" (Bugles), Rice Krispies kóngulær, ávexti og afmælisköku.
Tiger
 |
Lituðu afmæliskertin (þessi litríku) eru sjúklega flott! Athugið samt að þau passa ekki í kertastatífið sem er fyrir neðan þau á myndinni. Nokkrar stúlkur kvörtuðu einnig yfir því að rörin yrðu svo lin eftir smástund... |
 |
Vá hvað þetta virkar rykugt á myndinni, var það samt ekki! Þetta er kertastjaki, ég setti batterískerti í sem kom vel út ;) |
 |
Ljósasería, ýkt krúttleg :D Eitt eða tvö ljós virkuðu hins vegar ekki, ég hafði þó ekki tíma til að fara aftur og fá skipt... |
 |
Inni í þessu blikkar marglitt ljós, kemur mjög skemmtilega út ;) |
 |
Við föttuðum þegar heim var komið að þetta væru hringir... en maðurinn minn klippti það bara af og festi kóngulærnar upp um alla veggi í íbúðinni ;) |
 |
Ég stóðst ekki þessa... það var líka hægt að fá appelsínugula en mér fannst þessi flottari ;) |
Partýbúðin
 |
Við notuðum þessa í "blóðdrykkinn" |
 |
Þessi var á veisluborðinu |
 |
Þessar fóru líka á veisluborðið ;) |
 |
Lituðu blöðrurnar voru reyndar úr Hagkaup ;) |
Hagkaup
 |
Upphengja sem gestunum fannst frekar kúl ;) |
 |
Borðarnir voru ansi töff ;) Keypti tvær týpur, hér sést í aðra þeirra... |
 |
... og hér er hin ;) |
Megastore
 |
Þessi gína var klædd í ruslapoka og svo settum við hárkollu og efnisbút á hana. Við fundum svo þennan "hurðarbankara" í Megastore en hann fékk það hlutverk að verða andlit fígúrunnar ;) |
 |
Sést aðeins betur ;) |
 |
Við fengum svo borðdúk, beinagrind, kónguló, svarta rós og "fljúgandi höfuð" líka í Megastore ;) Ég keypti líka litla mynd af pari sem breyttist í uppvakninga eftir því hvernig á hana var litið en ég finn hvergi mynd af henni... |
Ebay
 |
Kóngulóarvefir... hver pakki er svo drjúgur að við notuðum bara einn þeirra, keyptum samt fjóra... kattarleikföngin voru reyndar ekki partur af skreytingum, þessi sending kom bara á sama tíma (jebb, af Ebay!) |
 |
Kemur mjög flott út |
 |
Ég keypti fjórar luktir en finn bara mynd af þessari... ég sá svo nákvæmlega eins luktir í Bónus fyrir tvöfalt hærra verð heldur en ég fékk þær á... þið ættuð að vita hvað mér finnst um Ebay... ;) |
 |
Gúmmí beinagrind, þolir reyndar ekki mikið hnjask ;) |
 |
Hérna sést svo glitta í leðurblökur sem systir mín sendi mér, þetta voru svona leðurblökurenningar sem maður getur t.d. hengt upp í loftið og þá virðast blökurnar vera á flugi, stelpurnar voru mjög hrifnar af þeim ;) |
Bónus
 |
Gluggalímmiðar ;) |
Söstrene Grene
 |
Þessar minntu mig á drauga. Þessi vinstra megin er lítill renningur til að hengja upp, ég hengdi hann í ljósakrónuna yfir veisluborðinu en ég endaði á að nota ekki stönglana hægra megin |
Ikea
 |
Appelsínugul eins og grasker... jebb, seld! (Þó ég hafi svo ekki þorað að kveikja á þeim í sjálfri veislunni) |
 |
Appelsínugult... eins og grasker... jebb... ég keypti tvö svona og setti saltstangir í þau og kom fyrir á veisluborðinu ;) |
Rúmfó
 |
Kertastjaki sem ég fékk á 50 kall... I rest my case! Það var líka hægt að fá svona bleika en mér fannst ekkert varið í þá... |
Ég var nú með kveikt á fattaranum í pínu stund og tók myndir af hluta veitinganna.. að vísu ekki þegar búið var að koma öllu fyrir á sinn stað... díses hvað ég var ekki að standa mig!
 |
Dóttirin vildi hauskúpuköku svo ég gerði mitt besta... keypti tilbúinn fondant en lenti samt í heljarinnar veseni... úff, aldrei aftur fondant! ALDREI!!! (Á samt pottþétt eftir að velja hann aftur síðar...) |
 |
Ég vildi vega aðeins upp á móti allri óhollustunni svo hver og ein fékk lítinn bolla með ávöxtum. Vínber, banani og epli skorið niður... ofur einfalt og sumar stelpnanna báðu um að fá meiri ávexti ;) |
 |
Rice Krispies kónguló ;) |
 |
Venjulegar Rice Krispies kökur skreyttar með klipptum pretzels og augum úr Allt í köku ;) |
Hver og ein stúlka fékk svo litla kveðjugjöf þegar heim var haldið ;)
 |
Nornapottur með sælgæti ;) |
Ég sá svipaða hugmynd á Pinterest (auðvitað!)
 |
Klippið botninn af stórri gosflösku og málið svartan. |
 |
Gerið gat sitthvorumegin og festið band/snæri í (ég fékk þetta í Tiger) |
 |
Hrekkjavökusleikjóar úr Tiger |
 |
Súkkulaðipeningar sem ég keypti í Hamleys í Glasgow ;) |
 |
Hrekkjavökunammi sem ég fann í Megastore |
 |
Namminu er svo raðað í og voilá! Nornapottarnir eru tilbúnir! ;) |
Mér finnst reyndar alveg ferlegt hvað ég var glötuð í myndatökum fyrir þetta blessaða blogg. Ég hef einungis símann minn til að taka myndir og nú er blessuð græjan orðin 3 ára gömul og byrjuð að "kalka" ansi mikið... ég þarf að endurræsa hann nokkrum sinnum í viku því hann er farinn að frjósa reglulega og svo er hann orðinn of gamall fyrir nýjustu útgáfuna af Snapchat.
Ég er annars orðin alltof virk í því appi og þori ekki að eyða því úr símanum því ég myndi örugglega ekki geta sett það inn aftur vegna aldurs símtækisins (ég er sko með Samsung Galaxy S2!)
Á þeim nótunum langar mig að minna á að ég á stórafmæli 24. nóvember... eftir þrjár vikur og þrjá daga takk fyrir! Ef einhvern langar að gleðja þetta (verðandi) gamla hró má sá hinn sami splæsa í nýjasta Samsung, ég bið ekki um mikið...
Ég er búin að vera í smá tilraunastarfsemi í eldhúsinu, nánar um það síðar!
Hilda
hildaosp á Snapchat
 |
Við mæðgur þegar veislan var alveg að hefjast... ég var norn og hún var Frankie úr Monster High ;) |
No comments:
Post a Comment