Ég er orðin ágætlega dugleg í því að setja mér markmið, bæði stór og lítil.
Mitt stærsta markmið þessa dagana er að lifa þennan vetur af!
Ókei, smá ýkjur...
Mitt helsta markmið er að klára BA-námið mitt í vor. Já, í vor!
Ég er núna á þriðja ári í náminu mínu. Hvern hefði grunað að ég gæti farið í háskóla og klárað?!?
Ég setti mér þetta markmið og ætla að klára það!
Ég setti mér það að vísu fyrir 10 árum síðan og beið svo í 7 ár með að láta verða af því... en ég er að því núna og ég er svo hissa á þeirri staðreynd að nú þarf ég að fara að ákveða um hvað ég vil skrifa í BA-ritgerðinni minni.
Þetta greinarkorn sem hún er... bara 30 blaðsíður, óttalega ræfilsleg kökusneið... eða já...
Eins og ég sagði áðan hef ég líka sett mér lítil markmið og þá er það eitthvað eins og að prófa að búa til Pumpkin Spice Latte eða ákveða hvernig aðventukransinn eigi að vera.
Ég tilkynnti manninum mínum mitt nýjasta markmið. Markmið sem ég tel mig þurfa á að halda.
Ég ætla að minnka sykurneyslu.
Ekki fyrr en í janúar því annars verður það mitt fyrsta verk að klúðra þessu.
Svo nú langar mig að leita ráða hjá ykkur, kæru lesendur. Hafið þið lagt í þetta? Hvernig gekk/gengur? Hvernig voru fyrstu skrefin?
Mig langar að vita ALLT!
Ég lofa svo að um leið og ég kemst í jólafrí skal ég koma með eins og einn pistil um Ebay-kaup! Og Pumpkin Spice Latte!
Fyrst þarf ég að klára tvær ritgerðir, 3000 orða þýðingu ásamt greinargerð, lokaverkefni og eitt lokapróf...
Heyrumst!
(ef ég held lífi eftir þetta brjálæði!)
Hilda
E.S. ef þið viljið fylgjast með (bráðum háaldraðri) konu sem lætur stundum eins og... tjah... ég veit ekki hvað... þá heiti ég hildaosp á Snapchat
E.S. 2 Þið vitið að ég á stórafmæli bráðum! (Eftir 6 daga!!!)
E.S. 3 Mig langar í pakka!
No comments:
Post a Comment